Skilmálar

Skilmálar FLÆÐI

Hér sérðu hvernig bókanir, afbókanir, áskriftir og kort virka. Með því að stofna aðgang og kaupa leið samþykkir þú þessa skilmála.

Bókanir

Þú bókar pláss í tíma á tímaáætluninni. Til að bóka þarftu virka áskrift, kort eða stakan tíma. Hver bókun dregur eitt skipti af mánaðarkvótanum þínum eða kortinu. Ótakmörkuð áskrift hefur engan kvóta.

Tímaáætlunin er opin 31 dag fram í tímann. Þú skráir þig inn á skjánum við innganginn þegar þú mætir.

Ef við þurfum að aflýsa tíma færðu tölvupóst og skiptið þitt til baka.

Afbókun og skróp

Þú getur afbókað á þínum síðum allt að 8 klukkustundum fyrir tímann og færð þá skiptið til baka.

Ef þú afbókar eftir þann frest, eða mætir ekki, missir þú skiptið. Engin önnur gjöld eru lögð á: við rukkum ekki sjálfkrafa fyrir seina afbókun eða skróp.

Ef eitthvað kemur upp á, til dæmis veikindi, skaltu hafa samband. Við getum skilað skiptinu handvirkt.

Biðlisti

Þegar tími er fullur getur þú skráð þig á biðlista. Ekkert skipti er dregið af fyrr en þú færð pláss, og þú getur tekið þig af listanum hvenær sem er.

Þegar pláss losnar færist fyrsti iðkandi á biðlistanum sjálfkrafa inn í tímann. Þá er skipti dregið af og þú færð tölvupóst. Eftir það gilda sömu reglur um afbókun og um aðrar bókanir.

Biðlistinn lokar 2 klukkustundum fyrir tímann. Eftir það færist enginn sjálfkrafa inn.

Áskriftir

Áskrift er mánaðarleg og endurnýjast sjálfkrafa. Við hverja endurnýjun er mánaðargjaldið tekið af kortinu sem þú skráðir við kaupin og þú færð kvittun í tölvupósti. Nýr mánaðarkvóti tekur þá gildi. Ónotuð skipti færast ekki á milli mánaða.

Fyrsti mánuðurinn getur verið á opnunartilboði. Tilboðið gildir einu sinni fyrir hvern iðkanda og eftir það gildir verðið í verðskrá.

Ef greiðsla tekst ekki látum við þig vita í tölvupósti og reynum aftur næstu daga. Á meðan greiðslan er ógreidd getur þú ekki bókað nýja tíma. Þú uppfærir kortið á þínum síðum.

Þú óskar eftir að breyta um leið eða segja upp á þínum síðum. Stúdíóið afgreiðir beiðnina og staðfestir hana við þig. Uppsögn tekur gildi við lok þess tímabils sem þegar hefur verið greitt.

Kort og gildistími

  • Stakur tími gildir í 30 daga frá kaupum.
  • Fjölskyldukort gildir í 180 daga frá kaupum.

Skipti sem eru ónotuð þegar gildistíminn rennur út falla niður og ekki er hægt að nota þau eftir það.

Fjölskyldukort má deila innan fjölskyldunnar. Eigandi kortsins bætir fjölskyldumeðlimum við á sínum síðum. Hver og einn þarf eigin aðgang og bókar sjálfur af kortinu.

Greiðslur og endurgreiðslur

Öll verð eru í íslenskum krónum. Greiðslur fara fram í gegnum Straum á öruggri greiðslusíðu. FLÆÐI sér hvorki né geymir kortanúmerið þitt. Fyrir áskriftir geymir Straumur kortið svo hægt sé að endurnýja mánaðarlega.

Kaup virkjast um leið og greiðsla er staðfest og þú færð kvittun í tölvupósti.

Endurgreiðslur eru ekki sjálfvirkar. Ef þú telur þig eiga rétt á endurgreiðslu skaltu hafa samband á [NETFANG] og stúdíóið afgreiðir málið.

Persónuupplýsingar

Við geymum aðeins það sem þarf til að reka bókunarkerfið:

  • Nafn, netfang og símanúmer, til að halda utan um aðganginn þinn og hafa samband vegna tíma.
  • Bókanir, mætingu og stöðu áskriftar eða korts, til að vita hver á pláss í hverjum tíma og hvað þú átt mörg skipti eftir.
  • Greiðslusögu og síðustu fjóra stafi og gildistíma korts, vegna kvittana og bókhalds.

Við sendum þér tölvupóst vegna innskráningar, bókana, biðlista og greiðslna. Áminningu fyrir tíma getur þú slökkt á á þínum síðum.

Við seljum ekki upplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum en þeim sem vinna þær fyrir okkur, svo sem greiðslumiðlun og tölvupóstþjónustu. Þú getur beðið um að sjá, leiðrétta eða eyða upplýsingunum þínum með því að skrifa á [NETFANG].

Seljandi

Rekstraraðili
Effect ehf.
Kennitala
420718-0120
VSK-númer
[VSK-NÚMER]
Heimilisfang
[HEIMILISFANG], Borgarnes
Netfang
[NETFANG]

Um skilmálana gilda íslensk lög.