Tímarnir okkar

Pilates

Styrktu djúpvöðva, bættu líkamsstöðu og finndu jafnvægi með markvissri hreyfingu.

Lengd
55 mínútur
Hópstærð
Allt að 10 manns
Skoða tímaáætlun
pilates

Um tímana

Pilates er markviss þjálfun á dýnu þar sem áherslan er á djúpvöðvana í kvið, baki og mjöðmum. Hreyfingarnar eru rólegar og nákvæmar og þú finnur fljótt hvar vinnan fer fram.

Við vinnum með líkamsstöðu, jafnvægi og stjórn. Það skilar sér í daglegu lífi, hvort sem þú situr mikið við skrifborð, stundar aðra hreyfingu eða vilt einfaldlega styrkja bakið.

Tímarnir henta öllum. Kennarinn fylgist með hópnum og lagar æfingarnar að þér ef þess þarf.

Við hverju má búast

  • Æfingar á dýnu með eigin líkamsþyngd og litlum áhöldum
  • Áhersla á kvið, bak og mjaðmir
  • Rólegt tempó og nákvæmar hreyfingar
  • Leiðsögn sem er löguð að hverjum og einum

Dýnur og áhöld eru á staðnum. Flestir æfa berfættir eða í sokkum með gripi.

Næstu tímar í pilates

Öll tímaáætlunin →

Engir tímar eru á dagskrá eins og er. Tímaáætlunin er sett inn mánuð fram í tímann.